Framleiðsla og sala á búvörum

Þriðjudaginn 26. maí 1998, kl. 14:02:08 (6910)

1998-05-26 14:02:08# 122. lþ. 133.4 fundur 559. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (mjólkurframleiðsla) frv. 69/1998, Frsm. meiri hluta GÁ
[prenta uppsett í dálka] 133. fundur, 122. lþ.

[14:02]

Frsm. meiri hluta landbn. (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nál. frá meiri hluta landbn. Eftir að tekið hefur verið fram hverjir komu á fund nefndarinnar og hvaðan umsagnir bárust segir svo:

,,Í frumvarpinu er lagt til að lögfestar verði nauðsynlegar breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum vegna ákvæða í samningi frá 17. desember 1997, um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu, milli landbúnaðarráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtaka Íslands. Samningurinn um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu byggist á áliti sjömannanefndar frá 4. nóvember 1997 um framleiðslu og vinnslu mjólkur.

Nefndin ræddi sérstaklega ákvæði 14. gr. frumvarpsins um að öll viðskipti með greiðslumark skuli fara um einn markað sem Framleiðsluráð landbúnaðarins eða annar aðili annast samkvæmt ákvörðun ráðherra. Nefndin leggur til að felld verði brott skilyrðislaus ákvæði um að viðskipti með greiðslumark mjólkur skuli fara um einn markað. Í stað þess verði landbúnaðarráðherra heimilt með reglugerð að ákveða markaðsfyrirkomulag sem skal gilda um viðskipti með greiðslumark mjólkur.

Í samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu frá 17. desember sl. eru ákvæði um að samningsaðilar muni standa að könnun og mati á mögulegum leiðum til að auka sveigjanleika núverandi kvótakerfis, auðvelda tilfærslu á greiðslumarki milli framleiðenda, auðvelda nýliðun og stuðla að raunhæfu verðlagi á greiðslumarki. Í áliti sjömannanefndar er á sama hátt lagt til að gerð verði úttekt á áhrifum fyrirkomulags sem leiddi til sveigjanlegra framleiðslustjórnunarkerfis á afkomu mjólkurframleiðenda, tilkostnað við mjólkurframleiðslu hjá framleiðendum og afurðastöðvum, nýliðun innan greinarinnar og jafnvægi í framleiðslu og eftirspurn mjólkurafurða. Nefnd sú sem standa skal að framangreindri könnun geri meðal annars tillögur til landbúnaðarráðherra um markaðsfyrirkomulag á viðskiptum með greiðslumark í mjólk sem fullnægi þeim skilyrðum um hagræðingu og hagkvæmni sem rakin er að framan.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Þær eru eftirfarandi:

1. Lagðar eru til tvær orðalagsbreytingar á 2. gr. frumvarpsins.

2. Lagðar eru til nokkrar breytingar á 14. gr. frumvarpsins. Í fyrsta lagi er lagt til að fellt verði brott ákvæði í 1. mgr. þess efnis að öll viðskipti með greiðslumark skuli fara um einn markað, sbr. umfjöllun hér að framan. Í öðru lagi er lagt til að kveðið verði á um í 3. mgr. að leiguliða sé heimilt að selja sérskráð greiðslumark án samþykkis jarðareiganda, en jarðareigandi skuli þó eiga forkaupsrétt við ábúðarlok leiguliða og að í 2. mgr. verði vísað til þessa ákvæðis 3. mgr. Með þessu er verið að undirstrika að ákvæði síðari málsliðar 2. mgr. eigi ekki við um sölu á sérskráðu greiðslumarki og hins vegar að forkaupsréttarákvæði jarðareiganda eigi aðeins við þegar um ábúendaskipti er að ræða. Þá er í þriðja lagi lagt til að landbúnaðarráðherra skuli setja nánari ákvæði í reglugerð um markaðsfyrirkomulag en ekki markaðssetningu.``

Undir þetta meirihlutaálit skrifa sá er hér stendur, Egill Jónsson, Árni M. Mathiesen, Magnús Stefánsson, Hjálmar Jónsson, Guðjón Guðmundsson og Sigríður Jóhannesdóttir með fyrirvara.

Fulltrúar jafnaðarmanna eru með minnihlutaálit. Ég held, herra forseti, að ég hafi ekki fleiri orð um málið hér í upphafi við þessa umræðu. Það er skýrt og liggur hreint fyrir.