Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Samninginn þarf að gera til langs tíma vegna þess að hérna er ríkisstyrkjakerfi og mikið kerfi sem ríkið þarf að vera aðili að. Ef þetta væri frjáls atvinnuvegur væri samningurinn fullkomlega óþarfur þannig að með því að festa þetta til sjö ára er verið að segja að ástand mála eigi að vera í sama farvegi og það hefur verið nú. Því er ég að mótmæla og einnig því að þjóðin fái aldrei að segja sína skoðun í kosningum um þessi mál.