Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga

Miðvikudaginn 27. maí 1998, kl. 11:49:43 (6980)

1998-05-27 11:49:43# 122. lþ. 134.8 fundur 655. mál: #A Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga# (geymsla áunnins réttar o.fl.) frv. 48/1998, Frsm. KÁ
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 122. lþ.

[11:49]

Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingar á lögum um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga, nr. 46/1997.

Þetta frv. er að mestu samhljóða því frv. sem var til umræðu á undan þessu og kallaði nefndin sömu aðila á fund sinn vegna þessa máls, þau Elínu Blöndal frá félmrn., Ingvar Sverrisson og Gunnar E. Sigurðsson frá Vinnumálastofnun og Margréti Tómasdóttur frá Atvinnuleysistryggingasjóði.

Á sama hátt og fyrra frv. er þetta frv. samið með hliðsjón af tillögum stjórnar Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga til félmrh.

Breytingar samkvæmt frv. eru almennt til ívilnunar fyrir atvinnulausa. Breytingar sem verið er að gera á lögunum um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga felast í því að í fyrsta lagi er kveðið á um rétt manna til að geyma áunninn bótarétt í allt að 24 mánuði. Ákvæðið felur í sér svigrúm fyrir þá sem misst hafa vinnu sína til að leita að nýrri vinnu án milligöngu vinnumiðlunar og án þess að sjálfstæð leit þeirra leiði til skerðingar bótaréttar. Þá er lagt til að sá sem hverfur af vinnumarkaði vegna töku fæðingarorlofs öðlist rétt til að geyma áunninn bótarétt í allt að 24 mánuði og mælt er fyrir um rýmkun á rétti fanga gagnvart atvinnuleysisbótakerfinu. Kveðið er á um rétt til hlutabóta ef menn stunda hlutastörf. Í gildandi lögum er ekki kveðið á um þennan rétt og hefur það leitt af sér réttaróvissu. Að lokum er skýrt kveðið á um hvaða greiðslur úr Tryggingastofnun eða lífeyrissjóðum komi til frádráttar atvinnuleysisbótum.

Eins og heyra má, hæstv. forseti, eru þessar breytingar samhljóða þeim breytingum sem lagðar eru til við lögin um atvinnuleysistryggingar. Hið sama kom fram í máli gesta varðandi þetta frv. að breyta þurfi gildistökuákvæðinu til þess að Vinnumálastofnun hafi tíma til þess að laga tölvukerfi sitt að breytingunum.

Því leggjum við til að 6. gr. orðist svo:

Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1998.

Í samræmi við þær breytingar sem verið er að gera á lögunum þarf einnig að gera aðrar breytingar sem lagðar eru til á sérstöku þskj. 1404. Þar er lögð til breyting við 1. gr., þ.e. breyting á fyrirsögn sem við leggjum til að verði: Geymdur bótaréttur.

Við 3. gr. frv. leggjum við til að fyrirsögnin breytist einnig og hljóði þannig: Bótaréttur með hlutastarfi.

Í þriðja lagi leggjum við til breytingu við 5. gr. sem er eingöngu breyting á tilvísun í málsgrein og að í stað orðanna ,,6. mgr.`` í b-lið komi: 5. mgr.

Undir þetta nál. skrifa allir nefndarmenn í félmn. en hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir og Ögmundur Jónasson skrifa undir með fyrirvara.