Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Fólk lifir að sjálfsögðu ekki á meðaltölum og það er afvegaleiðandi og misvísandi að tala um þessi mál með hliðsjón af meðaltölum, með hliðsjón af prósentu- eða hlutfallshækkun launa almennt, heldur verður að líta á lægstu laun í því sambandi. Staðreyndin er sú að fólk hefur iðulega framfæri sitt á Íslandi, í þessu mikla yfirvinnuþjóðfélagi okkar og í þjóðfélagi þar sem fólk býr víða við launakerfi sem byggir á öðrum þáttum en grunntaxtanum einum, margvíslegum bónusgreiðslum í fiskvinnslu og þar fram eftir götunum, að þá verður tekjutapið sem fólk verður fyrir við að fara á atvinnuleysisbætur miklu meira en nemur þessum mismuni sem er að verða á milli lægstu taxta og atvinnuleysisbóta. Hann er að verða fyrir hendi. Það er að verða mismunur á lágum launatöxtum og atvinnuleysisbótum. Þær hafa ekki fylgt lægstu töxtum, þær hafa ekki gert það. Og þetta er hægt að sjá bara með skírskotun til tölulegra upplýsinga, þetta er staðreynd.
En hitt er náttúrlega alvarlegast að fólk er að verða fyrir miklu meiri tekjuskerðingu en þessu nemur þegar það lendir á atvinnuleysisbótum og atvinnuleysisbætur eru það lágar að það lifir ekki nokkur maður af þeim einum.