Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Miðvikudaginn 27. maí 1998, kl. 15:33:28 (7008)

1998-05-27 15:33:28# 122. lþ. 134.12 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál. 13/122, GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 122. lþ.

[15:33]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Orð hv. þm. eru nú varla svaraverð. Ég nefndi það í ræðu minni að ég vildi meiri og betri atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Í fyrri ræðu minni ræddi ég ekki um 21 milljarðinn sem leið til þess að fjármagna þetta. Það er þó ágætt að hér er formaður stjórnar Byggðastofnunar og hann kannski hlustar á það. En 21 milljarðurinn kom svona bara í viðbót hérna áðan. Fyrst hann var að gera athugasemdir við þá fjármuni þá tel ég að þeim fjármunum verði betur varið öðruvísi. Þá var ég ekki að tala um að verja þeim í þessi námskeið. Ég tel að fjármunir frá Byggðastofnun gætu t.d. farið í þau. Ég vildi gjarnan koma því á framfæri við formann stjórnarinnar.