Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Miðvikudaginn 27. maí 1998, kl. 16:19:54 (7022)

1998-05-27 16:19:54# 122. lþ. 134.12 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál. 13/122, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 122. lþ.

[16:19]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Hv. formaður félmn. benti mér á að það væri sinn skilningur að þetta væri dekkað í brtt. nefndarinnar, þ.e. í f-lið þar sem ráðuneytin eru talin upp. Síðan segir í niðurlagi brtt.:

,,Kanna skal stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og gera áætlun um hvernig rétta skuli hlut kynjanna. Verði það m.a. gert með markvissri fræðslu til yfirmanna og annarra starfsmanna.``

Þarna er ég sammála formanni félmn., hv. 14. þm. Reykv., um að sett sé undir þennan leka.