Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir að vera sammála því frv. sem hér liggur fyrir og fyrir að afgreiða það með okkur innan tíðar. Það er mjög mikilvægt og í því eru miklar réttarbætur fólgnar.
Varðandi þetta lagaatriði sem hv. þm. hefur gert að umtalsefni þá byggir sú lagastoð á gagnkvæmri framfærsluskyldu hjóna sem er gamalgróin í okkar lögum. Ég get tekið undir það að í mörgum tilvikum er reglan ósanngjörn en í öðrum tilvikum, þar sem um háar tekjur maka er að ræða, tel ég þetta ekki eins ósanngjarnt. Þetta er því ekki jafneinfalt mál og hv. þm. ber hér á borð fyrir okkur.