Rannveig Guðmundsdóttir:
Herra forseti. Við jafnaðarmenn leggjum hér til að 1. mgr. 1. gr. frv. verði felld niður svo hægt verði að afgreiða málið í heild sinni en fresta ákvörðun um hina umdeildu gjörð til haustsins. Með því erum við þingmenn í takt við meirihlutavilja þjóðarinnar sem speglast hefur í skoðanakönnun, fjölmörgum blaðagreinum, áskorunum til Alþingis og ályktunum, m.a. borgarstjórnar Reykjavíkur. Við jafnaðarmenn gerum hér lokatilraun og leggjum að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að fresta því að miðhálendinu verði skipt upp í ræmur og erum með því samstiga borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna og stjórn framsóknarfélaganna í Reykjavík.
Með brtt. þessari gera jafnaðarmenn lokatilraun til að afstýra því að Alþingi Íslendinga taki afdrifaríka ákvörðun um að skipta miðhálendinu í örmjóar ræmur á milli 40 sveitarfélaga þannig að aðeins 4% þjóðarinnar koma til með að fara með stjórnsýslu á því svæði. Þetta gerir ríkisstjórn Davíðs Oddssonar þrátt fyrir það að sú ákvörðun sé í andstöðu við 70% þjóðarinnar.