Framleiðsla og sala á búvörum

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 10:50:41 (7075)

1998-05-28 10:50:41# 122. lþ. 135.8 fundur 559. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (mjólkurframleiðsla) frv. 69/1998, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 122. lþ.

[10:50]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég sé ekki betur en hér sé tillaga um afturvirkt lagaákvæði sem gengur ekki. Það er um að þrátt fyrir ákvæði 7. gr. laganna skal tilnefningu í nýja verðlagsnefnd búvara lokið 15. maí 1998 --- sem ég held að sé örugglega liðinn --- og nefndin fullskipuð 1. júní 1998. Ég legg til að hv. landbn. skoði þetta mál milli 2. og 3. umr. Þetta gengur ekki, herra forseti, svona. Það mætti auðvitað fresta atkvæðagreiðslu um málið líka.