Framleiðsla og sala á búvörum

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 10:52:06 (7078)

1998-05-28 10:52:06# 122. lþ. 135.8 fundur 559. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (mjólkurframleiðsla) frv. 69/1998, GÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 122. lþ.

[10:52]

Guðni Ágústsson:

Hæstv. forseti. Þingstörf hafa nú tafist og eru komin langt fram á sumar en þetta er hárrétt sem hv. 8. þm. Reykv. segir og hér áðan var verið að dreifa fundarboði. Landbn. kemur saman á þriðjudaginn og heldur fund. Þá verðum við að fara yfir þetta. Þarna verður að breyta dagsetningunni.