Dýralæknar og heilbrigðisþjónusta við dýr

Fimmtudaginn 28. maí 1998, kl. 11:10:28 (7084)

1998-05-28 11:10:28# 122. lþ. 135.10 fundur 436. mál: #A dýralæknar og heilbrigðisþjónusta við dýr# (heildarlög) frv. 66/1998, EgJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 122. lþ.

[11:10]

Egill Jónsson:

Virðulegi forseti. Ég minni á yfirlýsingu hv. formanns landbn. sem kom fram við 2. umr., um að málið yrði tekið aftur til meðferðar í landbn. Sá fundur hefur verið ákveðinn á þriðjudagsmorgun. Ég vona að þá takist að lagfæra ýmsa mjög alvarlega annmarka á þessu frv.