Staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn

Þriðjudaginn 02. júní 1998, kl. 12:51:19 (7207)

1998-06-02 12:51:19# 122. lþ. 139.1 fundur 568. mál: #A staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn# þál. 28/122, Frsm. meiri hluta TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 139. fundur, 122. lþ.

[12:51]

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar til að spyrja hv. þm. Hjörleif Guttormsson að því hvaða afstöðu hann taki til þingmálsins. Ætlar hann að greiða atkvæði með, á móti eða sitja hjá?