Söfnunarkassar

Þriðjudaginn 02. júní 1998, kl. 15:59:38 (7251)

1998-06-02 15:59:38# 122. lþ. 140.15 fundur 156. mál: #A söfnunarkassar# (brottfall laga) frv., HjálmJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 140. fundur, 122. lþ.

[15:59]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Ég greiði atkvæði með þessari málsmeðferð og það er m.a. vegna þess að hv. 1. flm. þessara tveggja mála, sem við greiðum atkvæði um, Guðrún Helgadóttir, lagði til í hv. allshn. að þessi málsmeðferð yrði viðhöfð.