Almannatryggingar

Þriðjudaginn 02. júní 1998, kl. 23:57:45 (7345)

1998-06-02 23:57:45# 122. lþ. 141.23 fundur 348. mál: #A almannatryggingar# (lögheimilisskilyrði, slysatrygging sjómanna o.fl.) frv. 59/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 141. fundur, 122. lþ.

[23:57]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að leiðrétta hv. þm. sem sagði að reglugerðin ætti sér ekki stoð í lögum. Það er ekki álit umboðsmanns Alþingis. Skýrt tekið fram segir umboðsmaður Alþingis alls ekki að hún eigi sér ekki stoð í lögum, heldur segir hann að það þurfi að skýra lögin og það er svolítið annað mál.