Gjöld af bifreiðum

Fimmtudaginn 04. júní 1998, kl. 10:34:39 (7421)

1998-06-04 10:34:39# 122. lþ. 144.21 fundur 715. mál: #A gjöld af bifreiðum# frv. 83/1998, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur, 122. lþ.

[10:34]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að óhjákvæmilegt sé að vekja athygli á því í þessu sambandi að nú er mikið rætt um hvernig hægt sé að haga skattheimtu á flutninga á landi með þeim hætti að það sé í samræmi við þann kostnað sem er af flutningunum, slit vega og annað því líkt. Af þeim sökum er nú mjög í athugun í nálægum löndum hvernig hægt sé að fylgjast með vöruflutningabílum á leið sinni milli landa og innan landa og um leið haft í huga að leggja olíugjaldið niður vegna þess að það er ekki réttlátur skattur og er ekki lagt á í samræmi við það slit sem farartækin valda á vegum.