Staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn

Fimmtudaginn 04. júní 1998, kl. 13:53:46 (7456)

1998-06-04 13:53:46# 122. lþ. 144.1 fundur 568. mál: #A staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn# þál. 28/122, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur, 122. lþ.

[13:53]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Með skírskotun til álits minni hluta utanrmn., hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur og þeirra orða sem félagar mínir hafa flutt í þessum atkvæðaskýringum greiði ég ekki atkvæði um þá tillögu sem hér er á dagskrá.