Lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara

Fimmtudaginn 04. júní 1998, kl. 14:09:39 (7462)

1998-06-04 14:09:39# 122. lþ. 144.2 fundur 445. mál: #A lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara# (heildarlög) frv. 86/1998, SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 144. fundur, 122. lþ.

[14:09]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Við í minni hluta menntmn. höfðum lagt fram brtt. sem við töldum að væri til mikilla bóta en hefur verið felld í atkvæðagreiðslu í þinginu. Sú tillaga sem hér er til afgreiðslu er þó til bóta miðað við eins og þetta stendur í sjálfu frv. þannig að við munum greiða þessu atkvæði.