Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég vísa til atkvæðaskýringa með frv. til laga um fjármálaeftirlit. Hér koma til atkvæða þau ákvæði sem koma inn í seðlabankalögin í staðinn fyrir kaflann um bankaeftirlitið sem þar hefur áður staðið og lúta að heimildum Seðlabankans til sjálfstæðrar upplýsingaöflunar, með öðrum orðum til að starfrækja sjálfstætt eftirlit í stað þeirrar eftirlitsstarfsemi sem Seðlabankinn hafði áður með höndum og féll undir lagaákvæðin um bankaeftirlitið. Hér er með öðrum orðum verið að veita Seðlabankanum án nokkurs vafa nauðsynlegar lagaheimildir til þess að byggja upp eigið eftirlitsbatterí á eigin vegum eða innan bankans í stað bankaeftirlitsins.
Ég vísa til þess sem ég hef áður sagt um það að ég tel að frágangurinn á þessu máli sé ekki nægjanlega vandaður. Veruleg ástæða er til þess að óttast tvíverknað og aukakostnað vegna þess hvernig frá málinu er gengið. Ég kýs því að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um ákvæði 7. gr. við hina nýju 13. og 14. gr. seðlabankalaganna.