Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegi forseti. Frv. sem við greiðum atkvæði um í lokaafgreiðslu, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, var meingallað mál þegar það var lagt fyrir þingið. Á því hafa vissulega verið gerðar endurbætur við 2. og 3. umr. málsins. Hv. þm. Sigríður Jóhannesdóttir og vafalaust fleiri hafa lagt fram mikla vinnu og góða í því sambandi. Eftir sem áður eru margir ágallar á þessari lagasmíð og af þeim sökum sit ég hjá við lokaafgreiðslu.