Skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 12:18:51 (7592)

1998-06-05 12:18:51# 122. lþ. 146.7 fundur 723. mál: #A skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.# þál., HjálmJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:18]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Stjórnmálaumræðan, um meintar ávirðingar, hefur undanfarnar vikur verið á afar lágu plani og fyrir neðan virðingu hv. Alþingis. Málið hefur verið sett í ákveðinn farveg og það mun hafa sinn gang hjá þar til bærum aðilum. Ég tel óþarft að láta sleggjudóma og fordóma hafa áhrif á þann gang eins og hér var gerð tillaga um. Ég segi já við frávísunartillögunni.