Skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 12:21:27 (7595)

1998-06-05 12:21:27# 122. lþ. 146.7 fundur 723. mál: #A skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.# þál., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:21]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Það er hlutverk Alþingis að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Framkvæmdarvaldið starfar á ábyrgð Alþingis. Með þessari tillögu er meiri hluti Alþingis að víkja sér undan þeirri ábyrgð. Þetta er sorglegt svo ekki sé sterkar að orði kveðið, hæstv. forseti. Ég segi nei.