Skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 12:24:56 (7599)

1998-06-05 12:24:56# 122. lþ. 146.7 fundur 723. mál: #A skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.# þál., félmrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:24]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Alþingi er löggjafarstofnun og vettvangur pólitískra skoðanaskipta, ekki lögreglustöð eða endurskoðunarskrifstofa.

Þáltill. stjórnarandstöðunnar er vanhugsuð því málið er í réttum stjórnskipulegum farvegi. Ég segi já við þessari tillögu að rökstuddri dagskrá.