Skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 12:28:35 (7602)

1998-06-05 12:28:35# 122. lþ. 146.7 fundur 723. mál: #A skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.# þál., SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:28]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Alþingi hefur samkvæmt lögum eftirlitsskyldu með framkvæmdarvaldinu. Með samþykkt frávísunartillögu þeirrar sem hér liggur fyrir verður komið í veg fyrir að Alþingi geti gegnt þessari skyldu sinni. Hvað er það sem knýr hæstv. ríkisstjórn til að hindra þá rannsókn sem hér er lögð til? Tíminn mun leiða það í ljós, herra forseti. Ég segi nei.