Orð formanns þingflokks Framsóknarflokksins

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 12:36:57 (7607)

1998-06-05 12:36:57# 122. lþ. 146.93 fundur 459#B orð formanns þingflokks Framsóknarflokksins# (um fundarstjórn), SvG
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:36]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Hér er ekki kostur á að biðja um orðið undir öðrum lið en ég verð að mótmæla því sem hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir sagði áðan sem röngu. Að sjálfsögðu var ekkert samkomulag við stjórnarandstöðuna um það að sú tillaga sem var vísað frá áðan kæmi aðeins til einnar umræðu. Það var samkomulag á milli stjórnarflokkanna en það gildir ekki um stjórnarandstöðuflokkana, þingmanninum til upplýsingar.