Þingfrestun

Föstudaginn 05. júní 1998, kl. 17:05:31 (7649)

1998-06-05 17:05:31# 122. lþ. 147.93 fundur 465#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 147. fundur, 122. lþ.

[17:05]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 122. löggjafarþings, frá 5. júní 1998 til septemberloka.

Gjört á Bessastöðum, 5. júní 1998.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 122. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.