Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Það þarf ekki að brýna forseta í þessu samhengi. Forseti gerði athugasemd þegar hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir óskaði eftir að fá að tala um störf þingsins og um þetta mál. Forseti gerði líka grein fyrir því að þegar hefur komið fram ósk frá hv. 8. þm. Reykv. um að taka þetta mál upp utan dagskrár og það verður gert, en forseti getur ekki neitað þingmönnum um að gera athugasemd um störf þingsins í upphafi fundar og þarf svo sem ekki að vita um hvað á að tala, þó hann hafi vitað það í þessu tilviki.