Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég er sammála hv. 11. þm. Reykv. sem sagði að það þyrfti að ríkja traust í útboðsviðskiptum og þess vegna er mér ekki alveg ljóst til hvers hv. þingmenn ætlast af utanrrh. í þessu sambandi. Það er farið út í að bjóða þessi viðfangsefni út og Ríkiskaup fengin til þess sem stendur í þessu á hverjum einasta degi og hefur mikla reynslu af slíkum málum. Það kemur niðurstaða út úr útboðinu þar sem það er álit þessara aðila sem hafa svona mikla reynslu að aðeins eitt tilboðið sé gilt. Síðan er það álit starfsmanna Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli að þetta tilboð skili mestum fjárhagslegum ávinningi fyrir Flugstöðina. Ætlast þingmenn til þess að utanrrh. í þessu tilviki rifti þessum málum öllum og ákveði, þrátt fyrir þetta, að taka einhverju öðru tilboði? (GÁS: Setja sig inn í málið þó.) Setja sig inn í málið? Á ráðherra sem sagt að fara yfir þetta? Það hef ég gert. Ég hef spurt menn út úr í þessu sambandi og ég treysti þessum aðilum. Á svo ráðherra að koma og taka bara einhverja allt aðra ákvörðun? Eru það ekki handahófskennd vinnubrögð? Er það þannig sem hv. þm. vann í ráðherratíð sinni? Ég trúi því ekki. Ég trúi því ekki að hv. þm. hafi unnið þannig.
Hér hefur verið farið að leikreglum og það er ekki hægt að breyta þeim leikreglum eftir á eftir geðþótta ráðherra. Ég tel mig hafa unnið að þessu máli í samræmi við þær skyldur sem ég hef sem ráðherra og hafi ekki leyfi til þess að vinna það öðruvísi. Ef ég hefði gert það, er náttúrlega alveg ljóst að sá sem fékk þetta verkefni, þ.e. Flugleiðir, hefði farið í skaðabótamál við utanrrh. og hann hefði þá þurft að vera viðbúinn því að taka afleiðingunum og ríkið að borga skaðabætur í samræmi við það þannig að mér finnst þetta vera alveg fráleitur málflutningur hjá mörgum hv. þm.