Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég skal viðurkenna að mér létti nokkuð við að heyra ræðu hæstv. menntmrh. Það er alla vega verið að skoða þetta mál betur. Öllum hlýtur að vera ljóst að mörgum námsmanninum brá í brún þegar þeir fengu þessar fréttir um breyttar reglur hjá lánasjóðnum því nú er liðinn um það bil einn og hálfur mánuður, jafnvel meira, frá því að nám hófst í ýmsum deildum háskólans. Þar hafa auðvitað margir hafið nám í annað og jafnvel þriðja sinn í þeirri trú að þeir fengju lán fyrir sínu námi.
Það gilda mjög sérstakar reglur í ákveðnum deildum háskólans og verður mér ekki síst hugsað til læknadeildar þar sem fjöldatakmarkanir hafa verið í gildi mjög lengi. Mér er sagt að nú sé ástandið þannig að þeir sem komast áfram upp á annað ár séu nánast eingöngu þeir sem hafa þreytt próf tvisvar. Það sé orðið býsna sjaldgdæft að námsmenn komist inn í þessa röð á fyrsta ári. Það eru því fjöldamargir sem eru núna að reyna að komast inn og eru á öðru ári og eru þeir auðvitað í mikilli óvissu um sína framtíð. Því vil ég skora á hæstv. menntmrh. að reyna að hraða þessari lagalegu athugun sem allra mest þannig að námsmenn fái þá alla vega að vita hver þeirra staða er. Auðvitað getur það ekki verið réttlætanlegt eftir að skólinn er hafinn, eftir að þessi tími er liðinn af námsárinu að námsmenn standi allt í einu frammi fyrir því að það nám, sem þeir hófu í góðri trú, sé ekki lengur lánshæft. Hver sem hin lagalega niðurstaða verður er þessi afturvirkni algerlega óréttlætanleg.