Flm. (Ágúst Einarsson) (andsvar):
Herra forseti. Í tillögu okkar jafnaðarmanna er tekið sérstaklega fram að aðalatiðið við fiskveiðar sé að fiskveiðistjórnunarkerfi sé hagkvæmt og fiskveiðiarðinum ekki sóað með röngu skipulagi. Vitaskuld þarf eitthvað að vera til skiptanna ef við erum að tala um að draga út úr greininni tilteknar upphæðir, jafnvel milljarða, með veiðileyfagjaldi og á það leggjum við megináherslu. Við bendum hins vegar á að veiðileyfunum er úthlutað ókeypis af almannavaldinu. Það er það sem er óréttlátt og óásættanlegt. Ég get hins vegar alveg tekið undir og staðfest orð hv. þm. að stýrikerfi í uppsjávarfiskveiðunum, sem er miklu eldra en stýrikerfið við botnfiskveiðar, hefur reynst býsna vel. Um það deila menn ekki nú orðið. Þetta liggur m.a. í því að útfærsla þess kerfis hefur verið lengur við lýði. En þarna erum við komin út í umræðu um stýrikerfið sjálft. Aðalatriðið í okkar huga er hin pólitíska ákvörðun um veiðileyfagjald eða ekki veiðileyfagjald vegna þess að hægt er að leggja á veiðileyfagjald og leggja niður kvótakerfið og taka þess vegna upp sóknarstýringu eins og hv. þm. hefur margoft lagt til. Það geta menn gert ef þeir kjósa svo. Það er óháð ákvörðuninni um að menn greiði fyrir afnot af sameiginlegri auðlind.