Veiðileyfagjald

Fimmtudaginn 09. október 1997, kl. 14:48:15 (324)

1997-10-09 14:48:15# 122. lþ. 6.2 fundur 5. mál: #A veiðileyfagjald# þál., KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur

[14:48]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. um það hver stefna Kvennalistans er í sjávarútvegsmálum. Styður Kvennalistinn núverandi aflamarkskerfi og þar með talið framsalið í því? Ef ekki, hvaða kerfi vill Kvennalistinn að verði notað við stjórn fiskveiða?