Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég verð nú að biðja hv. þingmann að gæta aðeins að sér í orðavali. Það stendur ekki til að sleikja upp einn né neinn. Það er ósæmilegt af hv. þingmanni að nota það orðbragð hér í þinginu. Það hefur engin endanleg ákvörðun verið tekin um hvort farið verður til Indónesíu. Hér er aðeins um könnun að ræða vegna þess að okkur finnst skynsamlegt að gera það með þessum hætti. En á fundum sem utanríkisráðherrar Norðurlandanna eiga reglulega sín í milli hefur verið lögð á það sameiginleg áhersla að þoka mannréttindamálum í hinum ýmsu ríkjum til réttari brautar, m.a. með viðræðum við þær þjóðir og heimsóknum til þeirra og nota þá tækifærið og þrýsta á þær og segja skoðanir sínar umbúðalaust. Og ef farið verður í ferð til Indónesíu þá verður það að sjálfsögðu gert. Þannig að ég bið hv. þingmann líka að líta til þeirra (Forseti hringir.) venja sem tíðkast í þessum efnum hjá hinum Norðurlöndunum sem við höfum haft mjög mikið og náið samstarf við.