Lögheimilisbreytingar sjómanna

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:16:23 (377)

1997-10-13 15:16:23# 122. lþ. 7.1 fundur 43#B lögheimilisbreytingar sjómanna# (óundirbúin fsp.), SvanJ
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:16]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra svörin. Það kemur fram í máli hans ríkur skilningur eins og við var að búast á þessu máli og eins og þingheimur heyrði þá er hann tilbúinn til þess að skoða lögin með tilliti til þess að hjón geti haft skipt lögheimili. Þetta er kannski einmitt það sem ég hafði vonast til að heyra og væntanlega munum við þá sjá frumvarp þess efnis fyrr en síðar á borðum alþingismanna.