Reykjavíkurflugvöllur

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:30:16 (390)

1997-10-13 15:30:16# 122. lþ. 7.1 fundur 45#B Reykjavíkurflugvöllur# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:30]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Það stendur nú svo á að flugmálaáætlun fyrir næstu fjögur ár hefur ekki verið afgreidd í báðum stjórnarflokkunum svo það er svolítið erfitt fyrir mig að ræða málið í augnablikinu, en ég geri mér vonir um að hægt verði að leggja tillögu að flugmálaáætlun fyrir í þessari viku eða hinni næstu og er þá rétt að hafa efnislega umræðu um málið.