Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hljóðs í andsvari var fyrst og fremst til að mótmæla þeirri staðhæfingu sem kom fram af hálfu hv. þm. Það var kannski ekki orðað alveg beint út, en hann gaf í skyn að það gæti verið að menn væru vísvitandi með rangar áætlanir og ég vísa því til föðurhúsanna. Ég benti á það sem hv. þm. hefur nú tekið undir að áætlanir hafa verið að batna. Þær eru unnar faglega. En það er rétt sem hv. þm. segir að stundum er ekki hægt að taka hluti sem ekki er búið að ákveða inn í áætlanir. Tökum sem dæmi Grundartangaálverksmiðjuna. Á meðan ekki lá fyrir ákvörðun var talið eðlilegra að skilja afleiðinguna eftir, taka ekki tillit til þess í áætluninni. Vegna hvers? Vegna þess að menn höfðu brennt sig á því áður þegar að menn tóku Atlantsálsverksmiðjuna á Keilisnesi inn í áætlunina í miklu bjartsýniskasti hérna fyrir nokkrum árum síðan af því að mönnum þóttu samningar ganga svo vel vegna Atlantsáls. Þess vegna sögðu menn að óvarlegt væri að taka það inn og það gerðum við ekki.
Eins var um kjarasamninga. Það var ekkert vitað um það í upphafi ársins hvernig þeir mundu enda. Auðvitað eru þetta áætlanir. En það eina sem mér gengur til er að benda á að þær eru heiðarlega unnar. Það er ekki neins staðar um vísvitandi blekkingar að ræða. Það er byggt á þjóðhagsforsendum sem koma frá Þjóðhagsstofnun. Ég þakka hv. þm. fyrir að taka undir það að í fjmrn. er unnið mjög faglega að þessum málum enda er þar hæft fólk. Það er löngu liðin tíð að menn séu að reyna að blekkja með einhverjum tölum enda á það ekkert að eiga sér stað. Þannig er ekki lengur unnið hafi einhvern tímann verið þannig unnið af hálfu fjmrn.