Fæðingarorlof feðra

Miðvikudaginn 15. október 1997, kl. 13:47:17 (502)

1997-10-15 13:47:17# 122. lþ. 9.2 fundur 75. mál: #A fæðingarorlof feðra# fsp. (til munnl.) frá fjmrh., ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur

[13:47]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ákvarða sjálfstæðan rétt karla til fæðingarorlofs. Þetta er afskaplega mikilvægur áfangi í jafnréttismálum og mjög mikilvægur áfangi í að viðhorfsbreyting verði í þjóðfélaginu gagnvart jafnréttismálum.

Það var mjög þarft að fyrirspyrjandi kom með þessa fyrirspurn þannig að það skýrðist í svari hæstv. fjmrh. að hér er átt við að allir karlar í starfi hjá ríkinu eigi þennan sjálfstæða rétt.