Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég hefði svo sannarlega minnst á biðlistana ef það hefði gefist tími til þess, en það er ekki hægt að minnast á allt í heilbrigðiskerfinu á fimm mínútum. En því miður virðist víða vera ansi langur biðlistinn eftir aðgerðum í heilbrigðiskerfinu. (Heilbrrh.: Hafa þeir ekkert styst?) Það getur vel verið að þeir hafi styst á einhverjum sviðum en ekki á öllum. Ég hafði samband við landlækni og hann sagði að ástandið í biðlistunum hefði lítið lagast. En það er ekki hægt að segja að nein heildarstefna sé á ferðinni. Það getur vel verið að hæstv. ráðherra hafi ákveðna stefnu í ákveðnum málaflokkum innan heilbrigðiskerfisins og það er af hinu góða. En því miður vantar heildarstefnuna og ég kalla það ekki góða stefnu að svelta stóru sjúkrahúsin á Reykjavíkursvæðinu eins og gert hefur verið og nota þessa þumalskrúfuaðferð sem stjórnvöld hafa beitt þessi sjúkrahús. Ég kalla það ekki góða stefnu.
Auðvitað hlýtur hæstv. ráðherra og sú ríkisstjórn sem nú situr að hafa komið einhverju til leiðar. En því miður er ástandið eins og lýst hefur verið í ræðum okkar. Það ríkir ófremdarástand í heilbrigðiskerfinu. Það eru engir samningar við lækna. Fólk þarf að borga fullt fyrir aðgerðir. Það er verið að mismuna fólk eftir efnahag o.s.frv. Það væri hægt að halda langa ræðu um það, hæstv. ráðherra.