Efling atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni

Fimmtudaginn 16. október 1997, kl. 18:27:46 (628)

1997-10-16 18:27:46# 122. lþ. 11.8 fundur 16. mál: #A efling atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni# þál., Flm. HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[18:27]

Flm. (Hjálmar Jónsson) (andsvar):

Herra forseti. Hvað mun þessi hópur gera ef og þá. Þetta eru sérkennilegar uppsetningar. Það sem við erum að gera einmitt núna er að vekja athygli á alvarlegum málum og hvernig við þurfi að bregðast og að það þurfi að bregðast verulega ákveðið og eindregið við. Við skulum spyrja að leikslokum. Við skulum spyrja að því hvernig fari með þessa tillögu og ræða síðan framhaldið.