Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki verið mæla fyrir ríkisstyrkjum í sjávarútvegi. Ég held að það sé alveg ótvírætt að Rögnvaldur Hannesson sé einn af fremstu fræðimönnum sem fjallað hefur um auðlindagjald. Þó ég sé ekki sammála þeirri niðurstöðu sem hann hefur komist að í þeim efnum þá viðurkenni ég hann sem fræðimann. Núna liggur fyrir að hann telur alveg óhjákvæmilegt að auðlindaskattur muni verða að hluta til borinn uppi af sjómönnum. Sú spurning sem ég hef lagt fram til þingmanna jafnaðarmanna er einfaldlega þessi: Er tímapunkturinn sem frv. var sett fram valinn núna af jafnaðarmönnum til þess að skerða launakjör sjómanna af því að kjarasamningar þeirra eru opnir? Er þetta sérstök sending, sérstök skilaboð þingmanna jafnaðarmanna til sjómanna af því tilefni að kjarasamningar þeirra eru opnir? Eru þeir sammála því mati prófessorsins að launakjör þeirra séu svo há að ekkert geri til að þau séu lækkuð með þessu móti? Það eru spurningar sem ég held að menn hljóti að spyrja flm. þess frv. sem er til umræðu.