Fiskveiðar utan lögsögu Íslands

Mánudaginn 20. október 1997, kl. 16:57:30 (657)

1997-10-20 16:57:30# 122. lþ. 12.6 fundur 146. mál: #A fiskveiðar utan lögsögu Íslands# (útboð veiðiheimilda) frv., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 12. fundur

[16:57]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill að gefnu tilefni minna á að andsvör eru tvær mínútur í senn en ekki tvær og hálf. Það hefur færst í vöxt að ræðumenn virði ekki þessi tímamörk og forsetadæmið hefur tekið þetta til almennrar umræðu í sínum hóp og vill fara þess vinsamlega á leit við þingmenn að þeir virði tímamörk.