Háskólar

Þriðjudaginn 21. október 1997, kl. 16:19:59 (719)

1997-10-21 16:19:59# 122. lþ. 13.7 fundur 165. mál: #A háskólar# frv., menntmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur

[16:19]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Herra forseti. Að sjálfsögðu verða aðalatriði málsins dregin fram í hv. menntmn. og þá mun koma í ljós að hv. þm. Svavar Gestsson hefur í meginatriðum haft rangt fyrir sér í þeim umræðum sem hafa farið fram um þetta mál í dag.