Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. flm. Pétur H. Blöndal viðurkenndi að laun sjómanna væru ekkert há, þau væru sums staðar há en við vitum það að hjá allt of mörgum sjómönnum eru þau mjög lág. Eins og ég sagði áðan hrekkur kostnaður sem þeir hafa af sjómennskunni varla fyrir laununum þegar upp er staðið og þeir fá ekkert útborgað. En hv. þm. er sérfræðingur í skattamálum og hann hefur, herra forseti, sérstakan áhuga á því að leiðrétta þau með einhverjum hætti og þá er sagt: Við verðum að byrja einhvers staðar. Og hvar á að byrja? Á sjómönnunum. Það sem mönnum dettur fyrst í hug að ráðast á er sjómannastéttin til þess að reyna að lagfæra ágalla sem hv. þm. sér á skattkerfinu.
Hv. þm. Pétur H. Blöndal benti á aðrar stéttir sem væru í löngum ferðalögum um heiminn vegna vinnu sinnar þar sem þær þyrftu að ferðast, tæki mikinn tíma og væru þeim til mikils ama. Ég lét mér helst detta í hug að hv. þm. væri þá að tala um bankastjóra eða einhverja slíka, að þetta væri svo erfitt eða við hverja á hv. þm. þegar hann talar um langar fjarverur vegna ferðalaga? Líf sjómanna er í raun stöðugt ferðalag í sjó og óveðrum í vinnu sinni. Eins og hefur komið fram hjá hv. þm. Guðmundi Hallvarðssyni er slit sjómanna 25% meira en annarra starfandi manna vegna þess að þeir þurfa að stíga ölduna allan sólarhringinn nánast með einu eða öðru móti þannig að þeirra aðstaða skapar miklu erfiðari lífsskilyrði heldur en nokkurra annarra þó svo þeir þurfi að ferðast mikið í flugvélum eða með öðrum hætti.
LÍÚ ræður að sjálfsögðu ekki öllu en þeir geta neitað að taka þátt í þessum kostnaði og þeir hafa þegar lýst því yfir. Meðan þeir hafa ekki lýst yfir neinum vilja öðrum en þessum kemur þetta frv. ekki til greina af minni hálfu og ég mælist til þess að það verði fellt.