Upplýsingarit ríkisstjórnarinnar

Mánudaginn 03. nóvember 1997, kl. 15:32:48 (836)

1997-11-03 15:32:48# 122. lþ. 17.1 fundur 61#B upplýsingarit ríkisstjórnarinnar# (óundirbúin fsp.), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur

[15:32]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að út er kominn bæklingur á vegum ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar um ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Það hefur heldur ekki farið fram hjá neinum að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar telur að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hafi staðið sig vel. Þetta eru litlar fréttir, þetta eru engar fréttir. En nú er spurt um það sem ekki er vitað: Hvað kostaði gerð áróðursbæklingsins og áróðurs ríkisstjórnarinnar um eigið ágæti? Hvað ætlar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að verja miklu fé úr almannasjóðum til sjálfshóls í þessari lotu? Við vitum um þær milljónir og milljónatugi sem áður hafa farið í áróður af þessu tagi og í margvísleg pólitísk gæluverkefni en nú er spurt um þessa áróðurslotu sérstaklega. Síðan er spurt: Á hvaða lið fjárlaga er að finna áróðurskostnað ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar?