Upplýsingarit ríkisstjórnarinnar

Mánudaginn 03. nóvember 1997, kl. 15:34:52 (838)

1997-11-03 15:34:52# 122. lþ. 17.1 fundur 61#B upplýsingarit ríkisstjórnarinnar# (óundirbúin fsp.), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur

[15:34]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Þetta mál er margþætt og margslungið. Þetta snertir peninga, þetta snertir siðferði og þetta snertir lýðræði. Þannig væri eðlilegt að spyrja hvort ríkisstjórnin ætli að láta stjórnarandstöðunni í té fjármuni til að standa straum af kynningu á sínum sjónarmiðum. Ég vil gera skýran greinarmun á upplýsingum sem verið er að koma á framfæri við almenning annars vegar og áróðri hins vegar. Ég vil spyrja hæstv. forsrh. hvernig hann réttlæti áróður af þessu tagi siðferðilega.