GLár fyrir MF

Þriðjudaginn 04. nóvember 1997, kl. 13:32:03 (897)

1997-11-04 13:32:03# 122. lþ. 18.91 fundur 72#B GLár fyrir MF#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur

[13:32]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hafa svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Margrét Frímannsdóttir, 5. þm. Suðurl., getur ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur vegna sérstakra anna leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 2. varaþm. Alþb. og óháðra í Suðurlandskjördæmi, Guðmundur Lárusson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar, en 1. varaþm. listans er forfallaður.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Svavar Gestsson,

formaður þingflokks Alþb. og óháðra.``

Þá er svohljóðandi bréf:

,,Ég undirritaður varaþm. Alþb. og óháðra í Suðurlandskjördæmi get því miður ekki tekið sæti Margrétar Frímannsdóttur, 5. þm. Suðurl., í fjarveru hennar nú. Ástæður þess eru annir í starfi.

Virðingarfyllst, Ragnar Óskarsson.``

Guðmundur Lárusson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.