Utandagskrárumræða um gjaldskrárbreytingar Pósts og síma

Þriðjudaginn 04. nóvember 1997, kl. 13:33:51 (899)

1997-11-04 13:33:51# 122. lþ. 18.94 fundur 75#B utandagskrárumræða um gjaldskrárbreytingar Pósts og síma# (aths. um störf þingsins), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur

[13:33]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Formaður þingflokks jafnaðarmanna hafði samband við mig og óskaði eftir því að við ættum, eins og ég skildi það, umræður hér á þinginu um nýja gjaldskrá Pósts og síma. Ég spyr hvernig á því standi að hún er ekki hér í þingsalnum til þess að hefja þær umræður.