Flugmálaáætlun 1998-2001

Þriðjudaginn 04. nóvember 1997, kl. 16:41:31 (947)

1997-11-04 16:41:31# 122. lþ. 18.7 fundur 207. mál: #A flugmálaáætlun 1998-2001# þál., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur

[16:41]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég er hv. þm. sammála um að það mál hefur komið upp við nefndarmenn í samgn. hvernig staðið skuli að því að lengja flugbrautina í Vopnafirði. Eins og hv. þm. er kunnugt stendur svo á að nýbúið er að leggja veg við enda flugbrautarinnar. Þetta mál hefur verið rætt bæði við vegamálastjóra og flugmálastjóra og ég tek undir áhuga allra þingmanna Austurlands að þetta mál sé athugað.