Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Mér varð það á í gær að fara vitlaust með nafn eins hv. þm. og vil biðjast afsökunar á því. Mér var bent á það eftir umræðurnar að það hefði komið fyrir mig fjórum sinnum í ræðu minni. Mér er það algjörlega óskiljanlegt og biðst afsökunar.