Jafnréttisráðstefna í Lettlandi

Miðvikudaginn 05. nóvember 1997, kl. 14:09:24 (976)

1997-11-05 14:09:24# 122. lþ. 19.3 fundur 107. mál: #A jafnréttisráðstefna í Lettlandi# fsp. (til munnl.) frá félmrh., ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur

[14:09]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að leggja fram þessa fyrirspurn og ráðherra fyrir svörin. Mér þykja það góð tíðindi að til standi að fylgja eftir því starfi sem hófst í Valmiera. Sjálf átti ég þess kost að sækja þessa ráðstefnu og þar var mikill og góður andi. Það er nauðsynlegt að fylgja eftir því góða starfi sem þar hófst. Ef fram fer sem horfir og ráðherranefndin stefnir að á fundi þann 10. desember held ég að það séu góð tíðindi fyrir jafnréttismál í baltnesku löndunum.