Guðrún Helgadóttir:
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. síðasta ræðumanni að Ríkisútvarpið hefur verulega tekið á í sambandi við endurbætur á útsendingum til sjómanna á hafi úti og til annarra landsmanna og hefur langbylgjusendirinn á Gufuskálum þar virkilega komið að gagni. En því stóð ég upp að menn skulu vanda sig og ekki bara gagnrýna. Menn skulu líka vanda sig sjálfir þegar þeir eru kallaðir til verka.
Þannig er mál með vexti að Ríkisútvarpið er að reisa mastur mikið við flugvöllinn á Eiðum. Undirbúningurinn gekk vitanlega þannig fyrir sig, fyrir nýja mastrið sem á að vera 250 metrar í staðinn fyrir það 75 metra háa sem þar var fyrir, að fyrst var send umsókn til byggingarnefndar í heimahéraði sem sendi síðan málið til umsagnar í flugráði og þar situr hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson. Ekki sá það góða ráð neitt athugavert við þetta góða mastur og þegar búið var að kaupa það og byggja undir það undirstöðu kom í ljós að það var 40 metrum of hátt. (Forseti hringir.) Ríkisútvarpið hefur orðið fyrir umtalsverðum skaða vegna þessara vinnubragða og hefði mátt nota þá peninga í annað betra til þess að búa betur að sjómönnum hér í landi úr því að þeir eru mættir hér á staðinn.