Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni vegna sérstakra anna leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 3. varaþingmaður Alþb. og óháðra í Reykjavík, Svanhildur Kaaber kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni, þar sem 1. varaþingmaður listans situr nú á Alþingi og 2. varaþingmaður listans getur ekki vegna anna tekið sæti á Alþingi.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Ögmundur Jónasson,
17. þm. Reykv.``
Borist hefur annað svohljóðandi bréf:
,,Ögmundur Jónasson alþingismaður hefur tjáð mér að hann verði að hverfa af Alþingi í nokkurn tíma. Vegna aðkallandi verkefna í starfi og námi um þessar mundir hef ég því miður ekki tök á að taka sæti hans á þingi meðan hann verður í burtu.
Með virðingu,
Guðrún Sigurjónsdóttir.``
Svanhildur Kaaber hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.